Bein útsending !

C

Formúlu Deildin | 2024-2025

Verð: 0kr

Reglur

Til að vera með þarftu að:
1. Skrá þig í GT Akademíu deildina/League í iRacing. Deildin er nr 4302
2. Skrá þig á Discord rásina okkar
3. Skrá þig í formið hér

Keppt er á Super Formula bílum í 10 umferðum
Liða og einstaklinga keppni

Fyrsta keppni 14.nóvember 2024.
Svo annanhvern Fimmtudag kl 19:30

Keppnisdagar:
Æfing opnar kl 19:30
Keppendafundur kl 20:15
Tímataka hefst kl 20:30

4 Sæti laus í Akademíunni – Bókanir í síma 537-2400 eða gta@gta.is | Verð: 4000kr, frítt fyrir meðlimi.

Aðeins þarf að skrá sig einusinni í mótið.
Öll umræða og frekari upplýsingar verða á Discord rásinni.

Reglur




ATH Reglur  geta breyst lítilega fyrir 7.nóvember.

 

Keppnisgreinarreglur fyrir Formúlu Deildina

Orðskýringar skáletraðra orða er að finna í Reglubók FIA sem aðgengileg er á vef AKÍS www.akis.is

2024-2025

GREIN 1 ALMENNT

GREIN 1.1 GILDISSVIÐ

1.1.1 Reglur þessar gilda fyrir allar keppnir í Formúlu deildinni hjá GT Akademíunni.

1.1.2 Keppnir eru haldnar samkvæmt Reglubók FIA (e. International Sporting Code (ISC)), þessum keppnisgreinareglum og sérreglum hverrar keppni.

1.1.3 Gæti misræmis á þessum keppnisgreinarreglum og Reglubók FIA þá gilda reglur deildarinnar.

GREIN 2 SKRÁNING

GREIN 2.1 KEPPENDUR OG Lið

2.1.1 Keppendur skrá sig og lið  í byrjun tímabils og teljast skráðir út tímabilið.
2.1.1.a Keppendur tilkynna afskráningar til stjórnar í gegnum Discord
2.1.1.b Keppendur geta skráð sig og lið í miðju tímabili ef sæti eru laus.
2.1.1.c Nöfn liða og merkingar skulu ávallt vera innan skynsemismarka.

2.1.2 Skráður ökumaður verður sjálfur að stýra sínum bíl í keppni.
2.1.2.a Heimilt er fyrir lið að fá varaökumann til að keyra fyrir sitt lið.
2.1.2.b varamaður þarf að skrá sig í formið og vera rétt merktur liði fyrir tímatöku eða honum er vísað úr keppni.

2.1.3 fyrstu 30 keppendur til að skrá sig í formið fá þáttökurétt.

GREIN 3 KEPPNISFYRIRKOMULAG

GREIN 3.1 ALMENNT

3.1.1 Ræst er úr kyrrstöðu með stillingum iRacing.

3.1.2 Komi upp sú staða að iRacing þjónn krefjist ræsingar á ferð verður verður settur upp nýr server með réttum stillingum og ræst aftur.
3.1.3 Skylt er að virkja hljóðrásir í iRacing svo keppnisstjóri geti gefið fyrirmæli ef þörf er á.
3.1.3.a Í æfingu verður möguelga gert nafnakall til þess að staðfesta virkni hljóðrásar og ber ökumönnum að svara þar ef spurt er til þeirra.

3.1.4 Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L í Reglubók FIA um aksturshegðun á brautum.
3.1.4.a Ökumaður sem ver stöðu sína á beinum kafla eða fyrir bremsusvæði má nota alla brautarbreiddina við fyrstu stefnubreytingu að því gefnu að marktækur hluti þess ökutækis sem reynir að komast framúr honum sé ekki við hlið hans. Á meðan ökumaður verst með þessum hætti má hann ekki yfirgefa brautina án ástæðu sem keppnisstjóri og dómnefnd telja réttlætanlega. (sjá Grein3.3)
3.1.4.b Til að taka af allan vafa, nemi framendi ökutækis sem reynir að komast framúr við miðju fremra ökutækisins telst það vera marktækur hluti.
3.1.4.c Ökumaður sem ver stöðu sína í beygju má halda aksturslínunni sé hann meira en hálfa bíllengd í miðri beygju fyrir framan þann sem reynir framúrakstur.

3.1.5 Ætli ökumenn sér að nota EXIT VEHICLE möguleikan í æfingu eða tímatöku, verða þeir að gera það utan brautar eða augljósrar aksturslínu.

3.1.6 Æfing á ræsingu eða önnur svipuð aksturshegðun er einungis leyfð á meðan æfingu stendur, og má aðeins framkvæma á lengsta beina kafla og úr aksturslínu.

3.1.7 Í lok aksturs ber ökumönnum að forðast árekstra og aka sem fyrst inn í pit.
3.1.7.a Fagnaðar spól er leyfilegt en velja skal stað sem er ekki á miðri braut eða gæti valdið árekstri.

3.1.8 Verði meiriháttar árekstur við upphaf keppni hefur keppnisstjóri möguleika á að kalla út öryggisbíl til að hægja niður keppni þar til ökumenn sem atvik hafði áhrif á hafa látið laga skemmdir bílanna og eru komnir aftast í röðina.

3.1.9 Sé öryggisbíll sendur út vegna atviks fá þeir ökumenn sem lentu í atvikinu að fara aftast í röðina sem er á eftir öryggisbíl í þeirri röð sem þeir koma úr pittinum.
3.1.9.a Þegar ökumenn koma úr pitti undir þessum kringumstæðum er þeim mögulega gert kleift að taka fram úr öryggisbíl til þess að ná stöðu sinni aftast í röð. Svokallað “WAVEBY” er notað svo þeir geti afhringað sig.
3.1.9.b Ökumönnum ber að fylgjast vel með skipunum sem iRacing gefur á meðan öryggisbíll er í braut.

GREIN 3.2 KEPPNISUMHVERFI

3.2.1 Keppt er í iRacing tölvuleiknum.

3.2.2 Keppendur þurfa að vera í áskrift hjá iRacing og eiga þær brautir og bíl sem notuð eru í mótaröðinni.

3.2.3 Keppendur hafa kost á að keppa með eigin búnaði eða fá lánað/leigt.
3.2.3.a Keppendum sem keppa með eigin búnaði er heimilt að vera staðsettir hvar sem þeim hentar.
3.2.3.b Keppendur verða nota stýri sem stjórntæki eða álíka búnað, ekki er heimilt að nota stýripinna nema sérstakar aðstæður keppenda krefjist þess.

3.2.4 Keppendur verða að nota iRacing aðgang með því nafni sem þeir eru skráðir undir til keppni.

3.2.5 Keppendur verða vera skráðir í GT Akademíu deildina/League(Deild #4302) í iRacing.

3.2.6 Aðstoðar tækni ekki leyfð. Td, sjálfvirk kúpling, sjálfvirk gírskipting.

3.2.6.a “anti-stall” og “Autostart” verður leyft, svo keppendur þurfa ekki að ræsa bílana sína sjálfir.

3.2.7 Skemmdir á bílum eru hafðar á raunverulegustu stillingu.
3.2.8 Ætli ökumenn að virkja hraða takmarkara (e. pit limiter) þurfa þeir að gera það sjálfir áður en ekið er inn á pittsvæðið.
3.2.9 Keppendum er frjálst að nota Overtake takkan þegar þeim hentar.

Grein 3.3 Framúrakstur og línur

3.3.1. Frammúrakstur hefst þegar framvængur á aftari (eltandi) bíll nemur við afturvæng á fremri bíl, og telst sem fullkomnaður framúrakstur þegar afturvængur á bílnum sem reynir framúrakstur, er kominn framúr framvæng þess sem verið er að taka framúr (verjandi) 

3.3.2 Það er á ábyrgð þess sem tekur framúr að gera það á ábyrgan hátt, eðlilega þurfa báðir bílstjórar að fylgja þessum reglum hér en sá sem tekur framúr þarf að gæta þess að gera það af öryggi..

Almennt séð hefur fremri bílstjóri rétt á hvaða línu sem er svo lengi sem hann er að gefa hæfilegt pláss þegar þess þarf.

3.3.2.a Nægt pláss er um þriðjungur af breidd bíls, mælt frá ytri kannt á dekki og að hvítu línunni sem telst brautarmörk.

3.3.3. Ef aftari bíll er ekki kominn að lágmarki með framdekk við miðjan bíl þess sem á að taka framúr (eigi seinna en þar sem beygt er inn almennt, þá telst það almennt séð eðlilegt að fremri bíll eigi rétt á hvaða línu sem er og aftari bill þurfi að víkja til að forðast árekstur.
Myndin hér fyrir neðan sýnir árekstur sem að öllum lýkindum yrði dæmt á aftari/eltandi bílinn.

3.3.4. Þegar eltandi bílinn hefur framdekk sín við eða framanvið miðju verjanda er almennt litið svo á að verjandi þurfi að gefa pláss fyrir eltandi bíl.

Hér fyrir neðan má sjá mynd þegar líklegast er að fremri bíl verði dæmd refsing.

3.3.5. Beygja og bremsa er ekki leyft, bíllinn á að ferðast í beinni línu á bremsukafla frá því að þú stígur á bremsuna og þar til að þú ert kominn að byrjun á beygjunni. 

3.3.6 Sikk Sakk á beinum köflum er bannað

3.3.6.a Fremri ökumaður má skipta um línu einusinni og svo þarf keppandi að halda sig á þeirri línu, fremri keppandi má skipta um aksturlínu fyrir næstu beygju svo lengi sem það er ekki bíll sem telst við hliðina á.
3.3.6.b Sikk Sakk til að slíta draft/léttara loftflæði á aftari bíl er með öllu bannað.

3.3.7. Ökumaður sem fer útaf skal koma sér inná brautina aftur eins fljótt og hægt er en þó án þess að skapa hættu fyrir aðra ökumenn, ökumaður þarf að halda sig þeim megin sem hann er að koma inná brautina, og á engann rétt aksturslínu nema hann sé kominn á sama hraða og aðrir bílar á þeim kafla brautar.
3.3.7.a Stranglega bannað er að aka þvert yfir brautina séu aðrir ökumenn að koma.


GREIN 3.4 TÆKNILEGT UMHVERFI

3.4.1 iRacing forritið mun að mestu leyti sjá um tæknilega keppnisstjórn og úthlutar refsingum fyrir útafakstur, þjófstart, árekstra og svo framvegis sem teljast gildir staðreyndadómar.

3.4.2 Komi upp sú staða í keppni að allir ökumenn missi samband við netþjón iRacing er keppnistjóra heimilt að ljúka keppni ef 120km hennar hafa þegar verið eknir. Að öðrum kosti skal endurræsa keppnina með 15 mínútna keppnistíma eftir á klukkunni.

GREIN 3.5 iRACING REFSINGAR

3.5.1 Atvikastig/Incident points (sem iRacing forritið dæmir á ökumenn):
3.5.1.a Létt snerting við annan bílstjóra (e. Light contact with another driver) x 0
3.5.1.b Dekk útaf braut (e. Wheels off the racing surface) x1
3.5.1.c Missa stjórn (e. Loss of control) x2
3.5.1.d Snerting við hluti í braut (e. Contact with other object) x2
3.5.1.e Mikil snerting við annan bílstjóra (e. Heavy contact with another driver) x4

3.5.2 Þegar ökumaður hefur fengið 20 atvikastig eða fleiri ber honum að keyra í gegnum pitt.
3.5.2.a Fyrir hver auka 10 stig eftir það er annað stopp í pitti.

3.5.3 Fyrir of hraðan akstur ökutækis inn í pittsvæði eða pittakrein má vísa keppanda úr keppni

3.5.6 Ströngustu reglur og viðurlög leiksins gilda í keppni og er refsingum beitt innan leiksins gerist ökumaður brotlegur (styttir sér leið, ekur utan vegar, ekur of hratt in á pittsvæði og svo framvegis).

3.5.7 Heimilt er að víkja keppanda úr keppni telji keppnisstjórn þörf á.

GREIN 3.6 Æfing/Upphitun

3.6.1 Skráðir keppendur skulu skrá sig inn á keppnisþjón(server) á keppnisdegi í gegnum iRacing forritið áður en iRacing æfingar lotu (practise) líkur svo þeir geti fengið aðgang að tímatökum. Ekki þarf að opna leikinn sjálfan, en að lágmarki þarf að ýta á “register” takkann áður en æfingalotu lýkur.

3.6.1.a Keppnisþjón er að finna í GT Akademíu Deildinni í iRacingUI.

3.6.2.b Liðsstjóri eða aðstoðarmaður keppenda skal skrá sig inn með “Watch” takkanum.

3.6.2.c Aðeins tveir aðstoðarmenn eða liðstjóri meiga tengjast keppnisþjón.

3.6.3 Hægt að er að velja um 1 tegundir af dekkjum, Hard, Soft, Medium.

3.6.4 Keppendafundur verður haldinn þegar 45 mínútur eru liðnar af þessari æfingu/upphitun, kl 20:15

GREIN 3.7 TÍMATAKA FYRIR RÁSPÓL

3.7.1 Að loknum Keppendafundi klárast æfing á keppnisþjóni og þá hefst Tímataka.

3.7.2 Tímataka fyrir ráspól er opin í 20 mínútur og eru allir ökumenn saman á brautinni meðan á henni stendur.

3.7.3 iRacing Qualifying Scrutiny verður stillt á Moderate.

3.7.4 Ökumaður sem er á úthring verður að víkja fyrir umferð.
3.7.4.a Óheimilt er að tefja fyrir bíl á hröðum hring og ber ökumanni að víkja úr aksturslínu til að hleypa bíl á hröðum hring framúr. (“Ökumaður á hröðum hring” er ökumaður sem er að aka hraðar en þú þrátt fyrir að þú sért búinn að ljúka þínum úthring.)
3.7.4.b Ef hraðari bíll nær keppanda þarf sá keppandi að víkja fyrir hraðari bíl.

GREIN 3.8 KEPPNI

3.8.1 Að lokinni tímatöku fyrir ráspól hefst keppni

3.7.2 Ræst er úr kyrrstöðu 

3.7.3 Öryggisbíll verður ræstur út að minnsta kosti einu sinni í keppni.
3.7.3.a tilviljunarkennt kerfi mun úthluta öryggisbíl á óákveðnum tíma eftir að 5 hringir hafa verið eknir.
3.7.3.b Setji keppnisstjórn út öryggisbíl sjálf mun vera slökkt á fyrrnefndu kerfi það sem eftir er keppni.

3.7.4 Gefin eru stig fyrir keppnislotu samkvæmt stigatöflu í grein.6 og grein.7

3.8.1 keppni er í kringum 45 mínútur eða um 210km.

GREIN 6 STIG ÖKUMANNA

6.1keppandi sem hlotið hefur flest stig samanlagt úr 5 efstu sætum hvers keppanda í keppnum til Íslandsmeistara telst Íslandsmeistari.

6.2 Stig til meistara eru gefin fyrir sæti í lokaúrslitum samkvæmt eftirfarandi töflu:
1. sæti : 25 stig
2. sæti : 18 stig
3. sæti : 15 stig
4. sæti : 12 stig
5. sæti : 10 stig
6. sæti : 8 stig
7. sæti : 6 stig
8. sæti : 4 stig
9. sæti : 2 stig
10. sæti : 1 stig

6.3 Að auki fæst eitt stig fyrir hraðasta hring hverrar keppni.

6.4 Séu tveir eða fleiri með jafnmörg stig í efsta sæti í lok keppnis tímabilsins skal sá teljast Íslandsmeistari sem oftar hefur sigrað keppnir á tímabilinu.
6.4.a Sé staða enn jöfn skal telja fjölda 2. sætis og svo koll af kolli.

GREIN 7 STIG LIÐA

7.1.1  Stig liða eru samanögð stig beggja keppenda fyrir hverja keppni.
7.1.2 Það lið sem er með flest stiga í lok tímabils telst Liða Meistari.
7.1.3 séu tvö eða fleirri lið með jafnmörg stig telst það lið sem hefur unnið oftar sigurvegari.

GREIN 8 KEPPNISFLOKKUR

GREIN 8.1 SUPER FORMULA

8.1.1 Allir ökumenn aka á SUPER FORMULA bíl, frjálst val á milli Honda og Toyota.

8.1.2 Stillingar á bíl eru frjálsar.

 

GT AKADEMÍAN

 

Faxafen 10 | 107 Reykjavík | Sími 537 2400

gta@gta.is

 

Styrkja

kr.